26.07.26 - 14:47
Brynjar Ingi Erluson
Þjálfari Juventus segir Martínez vilja yfirgefa Aston Villa

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Luciano Spalletti, þjálfari Juventus á Ítalíu, segir að Emiliano Martínez vilji fara frá Aston Villa, en hann hefur verið orðaður við ítalska félagið á síðustu vikum.
Enskir fjölmiðlar hafa undanfarið greint frá því að Martínez vilji yfirgefa Aston Villa. Það vekur þó meiri athygli þegar sömu upplýsingar koma frá þjálfara félags sem hefur reynt að klófesta hann.
Martínez er 33 ára gamall og hefur staðið í marki Aston Villa frá árinu 2020. Hann var aðalmarkvörður Argentínu þegar liðið varð heimsmeistari árið 2022 og einnig þegar Argentínumenn komust aftur í úrslitaleikinn í sumar.
Juventus hefur reynt að fá Martínez en virðist nú vera að gefast upp eftir að Villa hafnaði 5 milljóna punda tilboði félagsins.
„Martínez er markvörður sem vill skipta um félag og við leitum að leikmanni sem getur veitt samkeppni. Við erum þó nú þegar með tvo markverði,“ sagði Spalletti við Gazzetta dello Sport.
Samkvæmt Sky horfir Juventus nú til japanska landsliðsmarkvarðarins Zion Suzuki hjá Parma.