Fotbolti.net
26.09.21 - 17:09
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Barbára Sól skoraði í tapi Bröndby

Barbára Sól skoraði í tapi Bröndby
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það voru nokkrir Íslendingar í eldlínunni í evrópuboltanum kvennamegin í dag.
Í Dannmörku skoraði Barbára Sól Gísladóttir eina mark Bröndby í 3-1 tapi liðsins gegn Thisted FC.

Á Englandi lék María Þórisdóttir lék allan leikinn fyrir Chelsea í 6-1 tapi gegn Manchester United. Dagný Brynjarsdóttir lék allan leikinn í 4-0 sigri West Ham gegn Leicester.

Í Noregi spilaði Ingibjörg Sigurðardóttir allan leikinn fyrir Valerenga í sigri liðsins gegn Lilleström. Amanda Andradóttir kom inná undir lok leiksins.

Í Svíþjóð gerðu íslendingaliðin Rosengard og Kristianstads jafntefli 1-1. Guðrún Arnardóttir var í byrjunarliði Rosengard og Sif Atladóttir, Sveindís Jane Jónsdóttir og Delaney Baie Pridham í byrjunarliði Kristianstads.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.