Fotbolti.net
26.09.26 - 15:41
Brynjar Ingi Erluson

Stjórnarformaður Man City sendi opið bréf til stuðningsmanna

Khaldoon Al Mubarak (t.h)

Khaldoon Al Mubarak (t.h)

Canon

Mynd: EPA

Khaldoon Al Mubarak, stjórnarformaður Manchester City á Englandi, hefur sent stuðningsmönnum félagsins opið bréf eftir fréttir gærdagsins.
Manchester City fundið sekt í nánast öllum ákæruliðum
TENGT EFNI

Manchester City fundið sekt í nánast öllum ákæruliðum

Óháð nefnd ensku úrvalsdeildarinnar fann Manchester City sekt um 114 misalvarleg brot á fjárhagsreglum deildarinnar á tímabilinu 2009 til 2018.

Á þessum árum varð Man City þrisvar Englandsmeistari og kemur meðal annars til greina að svipta félagið titlunum.

Einnig gæti félagið fengið stigafrádrátt, háa sekt eða jafnvel verið fellt niður um deild. Man City ætlar hins vegar að áfrýja niðurstöðunni og hefur haldið fram sakleysi sínu frá því rannsóknin hófst.

Al Mubarak tók við sem stjórnarformaður Man City árið 2008 þegar Sheikh Mansour keypti félagið af Thaksin Sinawatra og hefur því fylgt félaginu í gegnum allt þetta tímabil.

„Ég hef verið hluti af þessu félagi í átján ár. Ég hef notið þeirra forréttinda að standa með ykkur á Etihad, Wembley og í Istanbúl og þetta félag hefur gríðarlega mikla þýðingu fyrir mig. Þið hafið sýnt mér og sagt aftur og aftur hversu mikilvægt Man City er ykkur og þess vegna skrifa ég til ykkar í dag.“

„Eftir fréttir gærdagsins hafa mörg ykkar eytt kvöldinu í að svara spurningum og skilaboðum frá vinum, fjölskyldu og samstarfsfólki og það sama á við um mig.“

„Þetta er það sem ég sagði við fjölskyldu mína: Það er enn langt í land í þessu ferli hjá ensku úrvalsdeildinni og við erum fullviss um, og staðráðin í að sanna, að málstaður félagsins sé jafn sterkur og þegar málið hófst.“

„Það er svo margt sem ég vildi geta deilt með ykkur til að hjálpa ykkur að skilja hvers vegna við erum svona sannfærð um stöðu okkar. Strangur trúnaður í lagaferlinu og ákveðni okkar í að virða hann þýðir hins vegar að ég get ekki gert það að svo stöddu.
Lögfræðingar þurftu meira að segja að fara yfir þetta bréf til að tryggja að farið væri að settum reglum.“


Al Mubarak hvatti stuðningsmenn síðan sérstaklega til að lesa fyrri yfirlýsingar félagsins um málið.

„Ég bið ykkur um að lesa vandlega yfirlýsinguna hér fyrir neðan, þá sömu og við sendum ykkur í gær, sem og yfirlýsinguna sem gefin var út í febrúar 2023. Hvert einasta orð skiptir máli og er satt,“ sagði Al Mubarak.

Þar vísaði hann til tveggja yfirlýsinga félagsins. Í þeirri fyrri, frá árinu 2023, sagðist Man City vera hissa á því að málið væri komið til rannsóknar og ætla að vinna með óháðri nefnd úrvalsdeildarinnar. Í þeirri sem birt var í gær lagði félagið hins vegar áherslu á að málinu væri enn ekki lokið.

„Á meðan sumir hafa verið fljótir að draga sínar eigin ályktanir og mikill hávaði er í kringum okkur hefur ekkert breyst. Við höfum áður tekist á við áskoranir saman og staðið uppi sem sigurvegarar. Það eru enn margir sem vilja slá á þann meðbyr sem félagið hefur náð og við munum ekki gefa þeim það tækifæri.“

„Það eru spennandi augnablik fram undan eftir landsleikjahléið. Við förum á Anfield eftir tvær vikur og tökum síðan á móti Paris Saint-Germain í Meistaradeildinni á Etihad. Þetta eru augnablik sem gefa okkur tækifæri til að fagna styrk Manchester City-fjölskyldunnar.“

„Eins og alltaf þakka ég ykkur fyrir þann stöðuga stuðning sem þið hafið sýnt,“
sagði hann að lokum.

Stjórnarformaður Man City sendi opið bréf til stuðningsmanna
Canon

Mynd: EPA

Stjórnarformaður Man City sendi opið bréf til stuðningsmanna
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.