Fotbolti.net
26.09.26 - 20:47
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Þjóðadeildin: Dýrkeypt vítaklúður Kane gegn heimsmeisturunum

Þjóðadeildin: Dýrkeypt vítaklúður Kane gegn heimsmeisturunum
Canon

Mynd: EPA

Heimsmeistarar Spánar heimsóttu England á Wembley í fyrstu umferð A-deildar í Þjóðadeildinni í kvöld. Lamine Yamal slapp einn í gegn strax í upphafi leiks eftir skelfileg mistök hjá Marc Guehi og kom Spánverjum yfir.
Anthony Gordon jafnaði metin eftir að hafa sloppið í gegn eftir laglegt samspil við Jude Bellingham. Harry Kane kom síðan Englandi yfir stuttu síðar þegar hann skoraði með skalla eftir fyrirgjöf frá Nico O'Reilly.

Kane fékk tækifæri til að skora þriðja mark Englands þegar liðið fékk vítaspyrnu snemma í seinni hálfleik. Hann fór hins vegar illa að ráði sínu. Hann rann til og skaut í slána.

Alex Baena jafnaði metin fyrir Spán skömmu síðar með skoti úr D-boganum. Mikel Oyarzabal tryggði Spáni sigurinn þegar hann vippaði boltanum yfir James Trafford í marki Englands.

Hinn 41 árs gamli Luka Modric kom Króatíu yfir strax í upphafi seinni hálfleiks gegn Tékklandi þegar hann fékk nægan tíma til að athafna sig. Adam Karabec jafnaði metin stuttu síðar en Marco Pasalic reyndist hetja Króata.

Sviss vann öruggan sigur á Norður-Makedóníu í B-deild þar sem Zeki Amdouni skoraði tvennu og lagði upp eitt. Skotland og Slóvenía gerðu markalaust jafntefli fyrr í dag í sama riðli.

Albanía lagði Belarús í C-deild. Finnland valtaði yfir San Marínó í sama riðli fyrr í dag. Þá vann Slóvakía sigur á Moldóvu. Færeyjar og Kasakstan skildu jöfn fyrr í dag í sama riðli.

Tékkland 1 - 2 Króatía
0-1 Luka Modric ('47 )
1-1 Adam Karabec ('54 )
1-2 ('77 )

England 2 - 3 Spánn
0-1 Lamine Yamal ('2 )
1-1 Anthony Gordon ('36 )
2-1 Harry Kane ('40 )
2-1 Harry Kane ('54 , Misnotað víti)
2-2 Alex Baena ('60 )
2-3 Mikel Oyarzabal ('74 )

Norður-Makedónía 0 - 3 Sviss
0-1 Remo Freuler ('22 )
0-2 Zeki Amdouni ('41 )
0-3 Zeki Amdouni ('74 )

Albanía 2 - 0 Belarús
1-0 Kristjan Asllani ('34 , víti)
2-0 Ernest Muci ('45 )

Slovakía 2 - 0 Moldóva
1-0 Ivan Schranz ('32 )
2-0 Ondrej Duda ('40 , víti)
Þjóðadeildin: Dýrkeypt vítaklúður Kane gegn heimsmeisturunum
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.