Fimmta umferð Meistaradeildar Evrópu hefst í kvöld þar sem tveir risaleikir eru á dagskrá. Real Madrid mætir Paris Saint-Germain í A-riðli á meðan Juventus spilar við Atlético Madríd.
Í A-riðli er PSG búið að tryggja sæti sitt í 16-liða úrslitum en liðið er fimm stigum á undan Real Madrid og getur því gulltryggt toppsæti riðilsins í kvöld. Fyrri leiknum lauk með 3-0 sigri PSG er liðin mættust í París.
Galatasaray og Club Brugge eigast við í sama riðli en ljóst er að liðin eru í baráttu um Evrópudeildarsæti.
Staðan er svipuð í B-riðli. Bayern komið áfram en liðið mætir Rauðu Stjörnunni í kvöld og sigur tryggir toppsætið. Jose Mourinho leiðir sitt lið gegn Olympiakos og getur hann komið liðinu í 16-liða úrslitin.
Það er mikil barátta í C-riðlinum. Manchester City er í efsta sætinu með 10 stig en Shakhtar og Dinamo Zagreb eru bæði með 5 stig á meðan Atalanta er með 1 stig. City mætir Shaktar á meðan Atalanta spilar við Zagreb.
Juventus er á toppnum í D-riðli með 10 stig og Atlético kemur þar næst á eftir með 7 stig en liðin eigast við í úrslitaleik um toppsætið. Lokomotiv Moskva og Bayer Leverkusen eru bæði með 3 stig.
Leikir dagsins:
A-riðill
17:55 Galatasaray - Club Brugge
20:00 Real Madrid - PSG
B-riðill
20:00 Tottenham - Olympiakos
20:00 Rauða stjarnan - Bayern
C-riðill
20:00 Man City - Shakhtar D
20:00 Atalanta - Dinamo Zagreb
D-riðill
17:55 Lokomotiv - Leverkusen
20:00 Juventus - Atletico Madrid
Athugasemdir