Mason Greenwood, framherji Manchester United, segist læra mikið af liðsfélaga sínum Edinson Cavani. Hinn 33 ára gamli Cavani hefur spilað vel síðan hann kom til Manchester United í byrjun tímabils.
„Hann er topp framherji og maður sá það um leið og hann kom hingað. Það sem hann gerir og hvernig hann hugsar um sig, hvernig hann æfir, hann gerir allt rétt sem fótboltamaður í rauninni," sagði Greenwood.
„Hann minnir mig mikið á Juan (Mata) sem hefur verið hér líka og Nemanja (Matic). Það eru tveir frábærir atvinnumenn. Það er alltaf gott að hafa þá í liði þínu og þú horfir upp til þeirra sem ungur strákur."
„Hann gerir sömu hreyfinguna sex eða sjö sinnum í leik, eins og gegn Southampton. Hann gerir þá hreyfingu á hverjum degi á æfingu. Hann hefur skorað tvö mörk með sömu hreyfingu. Það er gott að sjá hágæða framherja hjá félaginu sem þú getur lært af."
Athugasemdir