Chelsea og Man Utd berjast um miðjumann - Palace vill leikmann Bayern og Brennan Johnson
   lau 27. febrúar 2021 21:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
England: Jafnt í lokaleiknum - Dubravka kom til bjargar undir lokin
Newcastle 1 - 1 Wolves
1-0 Jamaal Lascelles ('52 )
1-1 Ruben Neves ('73 )

Newcastle tók á móti Wolves í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Wolves hafði unnið síðustu tvo leiki á meðan ekki hafði gengið vel að undanförnu hjá Newcastle. Steve Bruce ákvað að skipta um markvörð fyrir leikinn í kvöld og inn kom Martin Dubravka fyrir Karl Darlow.

Staðan var markalaus í leikhléi en á 52. mínútu kom fyrirliðinn Jamal Lascelles heimamönnum yfir með marki eftir fyrirgjöf Ryan Fraser.

Úlfarnir jöfnuðu leikinn tuttugu mínútum síðar, Ruben Neves skoraði eftir laglegan undirbúning Pedro Neto.

Bæði lið reyndu að ná inn sigurmarki en ekki tókst það, Fabio Silva komst næst því á þriðju mínútu uppbótartíma en Dubravka varði tilraun hans í þverslána.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 16 11 3 2 30 10 +20 36
2 Man City 15 10 1 4 35 16 +19 31
3 Aston Villa 15 9 3 3 22 15 +7 30
4 Chelsea 16 8 4 4 27 15 +12 28
5 Crystal Palace 15 7 5 3 20 12 +8 26
6 Liverpool 16 8 2 6 26 24 +2 26
7 Man Utd 15 7 4 4 26 22 +4 25
8 Everton 16 7 3 6 18 19 -1 24
9 Brighton 16 6 5 5 25 23 +2 23
10 Sunderland 15 6 5 4 18 17 +1 23
11 Tottenham 15 6 4 5 25 18 +7 22
12 Newcastle 15 6 4 5 21 19 +2 22
13 Bournemouth 15 5 5 5 21 24 -3 20
14 Fulham 16 6 2 8 23 26 -3 20
15 Brentford 15 6 1 8 21 24 -3 19
16 Leeds 15 4 3 8 19 29 -10 15
17 Nott. Forest 15 4 3 8 14 25 -11 15
18 West Ham 15 3 4 8 17 29 -12 13
19 Burnley 16 3 1 12 18 33 -15 10
20 Wolves 16 0 2 14 9 35 -26 2
Athugasemdir