Liverpool hefur áhuga á Senesi, Gordon og Ndiaye - City fylgist með Read - Mourinho orðaður við Newcastle
   fös 27. mars 2026 20:15
Ívan Guðjón Baldursson
Kjarnafæðimótið: Þór varði titilinn eftir vítaspyrnukeppni
Meistarar annað árið í röð
Meistarar annað árið í röð
Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net
Affi og Arok Birkir eftir lokaflautið.
Affi og Arok Birkir eftir lokaflautið.
Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net
Þór 1 - 1 KA
1-0 Bjarni Guðjón Brynjólfsson ('57)
1-1 Jakob Héðinn Róbertsson ('88)

Lestu um leikinn: Þór 8 -  7 KA

Þór og KA áttust við í úrslitaleik Kjarnafæðismótsins rétt í þessu sem er síðasti leikur beggja liða á undirbúningstímabilinu, en næstu leikir eru í Mjólkurbikarnum og svo Bestu deildinni þar sem bæði liðin leika í ár.

Það ríkti nokkuð jafnræði til að byrja með í Boganum en KA skapaði öll hættulegustu færin í fyrri hálfleik. Leikmenn KA voru óheppnir að skora ekki á lokamínútum fyrri hálfleiks svo staðan var markalaus þegar liðin gengu til búningsklefa í leikhlé.

Þór byrjaði seinni hálfleikinn betur og náði forystunni þegar Bjarni Guðjón Brynjólfsson skoraði á 57. mínútu. Hann fylgdi skottilraun Isaac Atanga eftir með fullkomnu skoti rétt utan vítateigs, þegar boltinn kom skoppandi til hans. Bjarni smellhitti boltann og þrumaði honum í stöngina og inn.

Það var nokkuð jafnræði með liðunum eftir markið en KA-menn tóku að gera sig líklegri undir lokin og náðu að jafna leikinn á 88. mínútu. Jakob Héðinn Bjarnason var þar á ferðinni og skoraði eftir þunga sókn, þar sem skot fór af varnarmanni og féll fyrir Jakob innan vítateigs.

Staðan var því 1-1 eftir venjulegan leiktíma svo grípa þurfti til vítaspyrnukeppni.

Ingimar Arnar Kristjánsson klúðraði fyrir Þór en svo brenndi Hans Viktor Guðmundsson af fyrir KA beint á eftir svo vítakeppnin fór í bráðabana. Þar klúðraði Mikael Breki Þórðarson fyrir KA og gerði Yann Emmanuel Affi sigurmark Þórsara.

Þór vinnur því Kjarnafæðismótið annað árið í röð.

Slapp
banner