Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
Telma Steindórs: Við höfum getað gert miklu betur
Ian Jeffs: Þetta var ekki alveg sanngjarnt
Óskar Smári: Við missum ekki svefn yfir því
Guðni: Það væri frábært ef þetta væri svona í öllum leikjum
Jóhann Kristinn: Eina sem við getum gert er að skammast okkar í kvöld
Matti er stoltur að hafa haldið hreinu tvo leiki í röð
Einar hefur áhyggjur af stöðunni: Stelpurnar hafa lent í þessu áður
Jón Óli léttur: Mannandskotinn kemur úr logninu úr miðbæ Reykjavíkur
Gylfi Tryggva: Ógeðistilfinning efst í kollinum
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
   fös 27. mars 2026 19:41
Elvar Geir Magnússon
Toronto
Orri um andlega áskorun: Einn af fáum jákvæðum punktum úr þessu
Eimskip
Orri Steinn Óskarsson landsliðsfyrirliði.
Orri Steinn Óskarsson landsliðsfyrirliði.
Mynd: KSÍ
Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson spjallaði við Fótbolta.net á keppnisvellinum í Toronto en á morgun leikur Ísland vináttulandsleik við Kanada.

„Þetta var bara fínt, völlurinn flottur, smá kalt en við erum því vanir. Góð æfing að baki," segir Orri, kátur beint eftir æfingu en hann getur loksins leikið fyrir Ísland að nýju eftir að hafa verið meiddur í undankeppni HM á síðasta ári.

„Þetta var langur tími og mikið af óheppilegum meiðslum alltaf þegar landsliðsverkefni var að koma. Það var erfitt fyrir mig að vera frá strákunum og geta ekki hjálpað liðinu. Geggjað að vera mættur aftur."

Var þetta andleg áskorun?

„Já mjög erfitt. Maður þarf að takast á við mikið þegar maður er meiddur og þroskast mikið sem manneskja og leikmaður. Mikilvægur en erfiður tími."

Orri og kærasta hans eignuðust sitt fyrsta barn á síðasta ári. Hjálpaði í gegnum þennan tíma að það fjölgaði í fjölskyldunni?

„Já það hjálpaði klárlega. Einn af fáum jákvæðum punktum úr þessu er að maður gat varið meiri tíma með fjölskyldu. Það var frábært."

Í viðtalinu ræðir Orri um komandi landsleiki og einnig er rætt um Real Sociedad, komandi bikarúrslitaleik og lagið sem stuðningsmenn syngja um hann.
Slapp
banner