Real Madrid 1 - 1 Chelsea
0-1 Christian Pulisic ('14 )
1-1 Karim Benzema ('29 )
0-1 Christian Pulisic ('14 )
1-1 Karim Benzema ('29 )
Chelsea mætti Real Madrid á æfingavelli Real í Madríd. Ekki er leikið á Santiago Bernabeu þar sem framkvæmdir standa þar yfir.
Christian Pulisic kom Chelsea yfir á 14. mínútu eftir góða sókn. Skömmu áður hafði Timo Werner fengið dauðafæri en Thibaut Courtois varði vel.
Karim Benzema hefur verið funheitur með Real Madrid á leiktíðinni og var það hann sem jafnaði leikinn á 29. mínútu með föstu skoti í teignum. Benzema hafði skömmu áður átt skot í stöngina.
Seinni hálfleikur var ekki mikið fyrir augað. Chelsea var það lið sem átti fleiri skot á markið en boltinn vildi ekki fara oftar inn en einu sinni.
Liðin mætast í seinni leiknum á miðvikudaginn í næstu viku. Sá leikur fer fram á Stamford Bridge.
Athugasemdir