12.08.26
Spáin fyrir enska - 11. sæti
GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON
Núna er komið að því að opinbera hvaða lið endaði í 11. sæti í sérstakri spá fréttafólks Fótbolta.net fyrir ensku úrvalsdeildina en það er Everton.
Everton virðist vera komið á stöðugri braut eftir mörg erfið ár þar sem fallbaráttan var fastur liður. David Moyes náði að skapa meira öryggi í leik liðsins á síðasta tímabili og Everton var um tíma óvænt í baráttunni um Evrópusæti. Liðið hrundi hins vegar á lokasprettinum og missti af tækifærinu eftir slaka uppskeru í síðustu umferðunum.
Nú er liðið á leið í sitt annað tímabil á hinum glæsilega Hill Dickinson Stadium og væntingarnar hafa hækkað verulega. Stuðningsmenn eru orðnir langþreyttir á að horfa niður töfluna og vilja sjá Everton berjast um Evrópusæti á ný. Nýju eigendurnir hjá Friedkin Group hafa hins vegar lagt meiri áherslu á að byggja upp stöðugt og sjálfbært félag en að taka skyndiákvarðanir.
Því hvílir ábyrgðin að mestu á herðum David Moyes. Hann hefur þegar komið stöðugleika á liðið en næsta skref verður mun erfiðara. Everton þarf að breyta stöðugleikanum í árangur og tryggja sér Evrópusæti ef félagið ætlar að réttlæta auknar væntingar í kringum nýja leikvanginn og endurvekja metnaðinn sem eitt sinn einkenndi félagið.
Stjórinn: David Moyes hefur komið stöðugleika á Everton á ný, en gagnrýnisraddirnar hafa ekki þagnað. Skotinn hefur verið gagnrýndur fyrir íhaldssaman leikstíl, að treysta frekar reyndum leikmönnum en ungum og fyrir að bregðast seint við í leikjum með skiptingum. Á móti kemur að hann tók við liði sem hafði verið í miklum vandræðum og færði það fljótt í öruggari stöðu. Nú bíður hans næsta áskorun sem er að breyta Everton í lið sem getur aftur barist um Evrópusæti.

Mynd: EPA
Leikmannaglugginn: Everton gerði mögulega ein bestu kaup sumarsins þegar félagið náði í besta leikmann Championship-deildarinnar frá Middlesbrough.
Komnir:
Tyrique George frá Chelsea - 18 milljónir punda
Merlin Röhl frá Freiburg - 17,3 milljónir punda
Hayden Hackney frá Middlesbrough - 16,5 milljónir punda
Christian Nörgaard frá Arsenal - 7 milljónir punda
Farnir:
Jack Grealish til Manchester City - Var á láni
Idrissa Gueye - Samningur rann út
Séamus Coleman - Samningur rann út
Líklegt byrjunarlið

Lykilmaður: Jordan Pickford
Pickford er enn einn öflugasti markvörður ensku úrvalsdeildarinnar og algjör hornsteinn í liði Everton. Enski landsliðsmarkvörðurinn hefur árum saman komið liðinu til bjargar og sinnir leiðtogahlutverki sínu vel aftast á vellinum. Pickford verður enn lykilmaður ef Everton ætlar sér að taka næsta skref. Hann er ekki aðeins sterkur markvörður heldur einn reynslumesti leikmaður hópsins.
Gaman að fylgjast með: Hayden Hackney
Miðjumaðurinn kom frá Middlesbrough í sumar eftir að hafa verið valinn besti leikmaður Championship-deildarinnar og skrifaði undir fimm ára samning við Everton. David Moyes hafði lengi haft augastað á honum og taldi hann í forgangi á félagaskiptamarkaðnum. Hackney er frábær með boltann, les leikinn vel og hefur þá yfirvegun sem þarf til að stjórna tempóinu á miðsvæðinu. Það er kominn tími á að hann spili í ensku úrvalsdeildinni.
Besta og versta mögulega niðurstaða: Besta niðurstaðan er að Everton endi sjöunda eða áttunda sæti og fari í Evrópu, fari jafnvel líka langt í bikarkeppnunum. Þeir hafa leikmennina í það. Versta niðurstaðan er annað 'meh' tímabil þar sem liðið verður um miðja deild eða aðeins fyrir neðan hans og spilar um ekki neitt.
Þau sem spáðu: Arngrímur Alex Birgisson, Elíza Gígja Ómarsdóttir, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Hafþór Örn Laursen, Haraldur Örn Haraldsson, Ívar Björgvinsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Kári Snorrason, Mate Dalmay, Snæbjört Pálsdóttir, Stefán Marteinn Ólafsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke.

Liðin fengu eitt stig og upp í 20 eftir það hvar hver og einn spáði þeim. Liðið í síðasta sæti fékk eitt stig, liðið í 19. sæti tvö stig og koll af kolli. Stigin í spánni tengjast á engan hátt stigafjölda liðanna í deildinni..
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. ?
11. Everton, 123 stig
12. Brentford, 111 stig
13. Crystal Palace, 101 stig
14. Leeds United, 95 stig
15. Fulham, 90 stig
16. Nottingham Forest, 85 stig
17. Sunderland, 78 stig
18. Coventry City, 42 stig
19. Ipswich Town, 32 stig
20. Hull City, 14 stig
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. ?
11. Everton, 123 stig
12. Brentford, 111 stig
13. Crystal Palace, 101 stig
14. Leeds United, 95 stig
15. Fulham, 90 stig
16. Nottingham Forest, 85 stig
17. Sunderland, 78 stig
18. Coventry City, 42 stig
19. Ipswich Town, 32 stig
20. Hull City, 14 stig