Fotbolti.net
12.08.26 - 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Bournemouth að spara og sendir Ünal til Spánar

Bournemouth að spara og sendir Ünal til Spánar
Canon

Mynd: EPA

Enes Ünal er á leið til spænska félagsins Getafe frá enska úrvalsdeildarfélaginu Bournemouth.

Sky Sports segir frá því að Unal fari á frjálsri sölu til Spánar en Getafe gæti endað á að borga 1,2 milljón punda ef Ünal stendur sig á Spáni. Þá fær Bournemouth 20% af næstu sölu.
Ünal er 29 ára tyrkneskur framherji sem er á leið til Spánar að ganga frá skiptunum.

Sky Sports segir að Bournemouth spari sér um 10 milljónir punda í launagreiðslum með því að láta Ünal fara á frjálsri sölu. Hann á tvö ár eftir af samningi sínum við Bournemouth.

Bournemouth er með Evanilson, nýja leikmanninn Alvaro Rodriguez og Daniel Jebbison til taks í fremstu stöðu. Eli Junior Kroupi er einnig kostur en hann verður frá vegna meiðsla næstu þrjá mánuði.

Ünal kom frá Getafe árið 2024 og skoraði fimm mörk í 57 leikjum hjá Bournemouth.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.