Fotbolti.net
11.08.26 - 19:24
Brynjar Ingi Erluson

Vilja fá hann aftur þrátt fyrir að hafa ekki nýtt kaupákvæðið

Vilja fá hann aftur þrátt fyrir að hafa ekki nýtt kaupákvæðið
Canon

Mynd: EPA

Sambandsdeildarmeistarar Crystal Palace eiga í viðræðum við Aston Villa um að fá Fílabeinsstrendinginn Evann Guessand aftur að láni.
Guessand lék með Crystal Palace á láni síðari hluta síðasta tímabils og skoraði tvö mörk í fjórtán leikjum. Annað þeirra kom þegar Palace varð Sambandsdeildarmeistari.

Hann hafði leikið með Aston Villa í Evrópudeildinni fyrri hluta tímabilsins og fékk því einnig verðlaunapening þegar Villa vann þá keppni. Guessand varð þar með Evrópumeistari með tveimur félögum á sama tímabilinu.

Framherjinn sneri aftur til Villa í sumar en er ekki inni í framtíðaráætlunum Unai Emery og má finna sér nýtt félag.

BBC segir Palace vilja fá hann aftur og að viðræður séu hafnar.

Palace ákvað að virkja ekki kaupákvæðið í lánssamningi Guessand eftir síðasta tímabil en vill nú fá hann aftur að láni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.