12.08.26 - 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ásdís Karen í FH (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kemur frá Braga.

Mynd: Braga

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ásdís Karen Halldórsdóttir hefur fengið félagaskipti í FH en hún kemur í Hafnarfjörðinn frá Braga í Portúgal. Fótbolti.net sagði frá yfirvofandi félagaskiptum hennar í gær. Samningur Ásdísar við FH er skráður fram í nóvember og ekki er ljóst hvort hún komi á láni í Hafnarfjörðinn eða skrifi einfaldlega undir stuttan samning.
Ásdís er sóknarþenkjandi leikmaður sem fædd er árið 1999. Hún á að baki tvo A-landsleiki og lék áður 31 leik fyrir yngri landsliðin og skoraði í þeim sjö mörk.
Ásdís er sóknarþenkjandi leikmaður sem fædd er árið 1999. Hún á að baki tvo A-landsleiki og lék áður 31 leik fyrir yngri landsliðin og skoraði í þeim sjö mörk.

TENGT EFNI
Ásdís Karen á leið til FH
Á Íslandi hefur hún spilað með KR og Val en hefur frá árinu 2023 leikið erlendis. Hún hefur verið hjá LSK í Noregi, Madrid CFF á Spáni og nú verið Braga í rúmt ár. Í 25 leikjum hjá Braga hefur Ásdís skorað fjögur mörk.
Fótbolti.net sagði frá því á mánudag að Ída Marín Hermannsdóttir, markahæsti leikmaður Bestu deildarinnar, væri líklega á leið til Hammarby í Svíþjóð og í kjölfarið kemur Ásdís til Fimleikafélagsins.
Ásdís fær leikheimild á morgun og verður því ekki með toppliðinu gegn Fram í kvöld. Hún gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir FH á laugardag þegar FH tekur á móti Breiðabliki í toppslag deildarinnar.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Breiðablik | 17 | +25 | 36 |
| 2 | FH | 17 | +23 | 34 |
| 3 | ÍBV | 17 | -2 | 27 |
| 4 | Stjarnan | 17 | +5 | 26 |
| 5 | Þróttur R. | 17 | -3 | 22 |
| 6 | Grindavík/Njarðvík | 17 | -5 | 22 |
| 7 | Þór/KA | 17 | -3 | 19 |
| 8 | Fram | 17 | -16 | 19 |
| 9 | Víkingur R. | 17 | -12 | 17 |
| 10 | Valur | 17 | -12 | 17 |