12.08.26 - 11:12
Kári Snorrason
Slæmar fréttir frá Þýskalandi - Gísli Gotti meiddist illa og gengst undir aðgerð

Á að baki fjóra A-landsleiki.

Mynd: St. Pauli

Á að baki fjóra A-landsleiki.

Mynd: St. Pauli
Gísli Gottskálk Þórðarson varð fyrir alvarlegum vöðvameiðslum á læri á laugardag og gengst undir aðgerð síðar í dag.
Gísli var kynntur sem nýr leikmaður St. Pauli á föstudag en hann kemur á láni frá Lech Poznan en lánssamningurinn inniheldur kaupákvæði.
Hann meiddist á síðustu æfingu Pauli fyrir leik liðsins gegn Greuther Furth á sunnudag.

TENGT EFNI
Fyrsti Íslendingurinn hjá einu áhugaverðasta fótboltafélagi heims
Í tilkynningu Pauli segir að ákveðið hafi verið að senda Gísla í aðgerð eftir samráð við hann og pólska félagið. Hann mun síðan hefja endurhæfingu sína í Hamborg.
Þessi 21 árs gamli miðjumaður hefur verið verulega óheppinn með meiðsli og hefur hann verið mikið frá síðan hann fór út til Póllands frá Víkingi fyrir um einu og hálfu ári síðan.
Þessi 21 árs gamli miðjumaður hefur verið verulega óheppinn með meiðsli og hefur hann verið mikið frá síðan hann fór út til Póllands frá Víkingi fyrir um einu og hálfu ári síðan.