Fotbolti.net
12.08.26 - 11:06
Elvar Geir Magnússon

City vill Enzo en verðmiðinn er hár - Barca með nýtt tilboð í Rodri

Enzo í leik með Argentínu á HM.

Enzo í leik með Argentínu á HM.

Canon

Mynd: EPA

Manchester City hefur augastað á sóknarmiðjumanninum Enzo Fernandez en verðmiðinn sem Chelsea setur á hann, 120 milljónir punda, gæti reynst of hár.

Enzo Maresca stjóri City hefur mikinn áhuga á Enzo eftir að hafa unnið með honum í eitt og hálft tímabil hjá Chelsea.

Þessi 25 ára gamli leikmaður var lykilmaður í liði Maresca sem hafnaði í fjórða sæti ensku deildarinnar á síðasta ári, vann Sambandsdeild Evrópu og félagsliða.
Rodri færist nær Barcelona
Barcelona hefur lagt fram endurbætt tilboð í Rodri, miðjumann Manchester City, upp á 51 milljón punda.

Nýtt tilboð spænska félagsins er nálægt verðmati City á þessum þrítuga leikmanni, sem var fyrirliði spænska landsliðsins þegar það vann heimsmeistaramótið.

Miðjumaðurinn hefur lýst því yfir að hann vilji helst fara til Barcelona og þykir það óhjákvæmilegt að hann muni yfirgefa enska stórliðið.
Rodri færist nær Barcelona.

Rodri færist nær Barcelona.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.