Fotbolti.net
12.08.26 - 15:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Lammens númer eitt

Lammens númer eitt
Canon

Mynd: Manchester United

Manchester United opinberaði í dag að markvörðurinn Senne Lammens myndi spila með nýtt númer á baki treyju sinnar á komandi tímabili.

Lammens, sem keyptur var frá Belgíu síðasta sumar, verður í treyju númer 1 á komandi tímabili.
Lammens, sem er 24 ára Belgi, var fyrstu þrjá leikina á bekknum hjá United eftir komuna síðasta haust en í kjölfarið byrjaði hann sinn fyrsta leik og leit ekki um öxl. Hann hélt átta sinnum hreinu í 33 leikjum og hjálpaði United að enda í 3. sæti úrvalsdeildarinnar.

Hann var í treyju númer 31 en tekur við treyju númer 1 af Altay Bayindir sem lánaður var til Celta Vigo á dögunum.

Lammens var keyptur á 21 milljón evra frá Antwerp og gerði samning fram á sumarið 2030.

Hann fetar í fótspor markvarða á borð við Peter Schmeichel, Fabien Barthez, Edwin van der Sar og David de Gea.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.