Fotbolti.net
12.08.26 - 12:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Styttist í endurkomu Rúnars eftir árs fjarveru

Styttist í endurkomu Rúnars eftir árs fjarveru
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vinstri bakvörðurinn Rúnar Þór Sigurgeirsson gekk í raðir danska félagsins Sönderjyske síðasta sumar frá hollenska félaginu Willem II.

Hann er uppalinn í Keflavík og hafði leikið með Öster í Svíþjóð áður en hann hélt til Hollands.

Rúnar varð fyrir því óláni að slíta krossband í lok september í fyrra, um mánuði eftir komuna til Danmerkur.
Hann er 26 ára og það styttist í að hann snúi aftur á völlinn.

Rúnar er aðeins byrjaður að æfa með liðinu eftir meiðslin, stefnt er að því að hann komi meira inn á æfingar núna í framhaldinu og stefnir hann á að verða klár í að spila eftir landsleikjahléið í haust.

Hjá Sönderjyske er Rúnar liðsfélagi Daníels Leós Grétarssonar og Brynjars Inga Bjarnasonar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.