Bjössi: Rosa gott að vera kominn heim

Björn Sigurbjörnsson, þjálfari Selfoss í leiknum í kvöld

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Björn Sigurbjörnsson, þjálfari Selfoss í leiknum í kvöld

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Nokkuð solid sko. Þetta var erfitt, þær gefa manni einhvern veginn aldrei frið. Fyrsti leikur, við vissum að það yrði erfitt að koma hingað því þær eru svona lið sem elskar að stressa andstæðinginn og það var alveg streita í okkur að koma hérna. Þannig ég held að ef við hefðum ekki skorað svona snemma þá hefði þessi leikur getað verið galopinn sko," sagði Björn Sigurbjörnsson þjálfari Selfoss eftir 4-1 útisigur á Aftureldingu í kvöld, í 1. umferð Bestu deildar kvenna.
„Ég er alveg viss um að Afturelding á eftir að gefa öllum liðum leik, við fundum það svo sem að þær minnka muninn úr víti og af því að við náðum marki beint í andlitið á þeim aftur þá svona fannst okkur við hafa náð aðeins gripum á leikinn og eftir að við skorum fjórða markið þá var erfitt fyrir þær að elta. En þetta er stemningslið og ég veit að það eru meiðsli í herbúðum þeirra, þannig þær eiga eftir að vera erfiðar í sumar sko."
Bjössi er ánægður með standið á liðinu í upphafi móts. „Mér finnst þær vera bara í fínu standi og við erum að vinna í að bæta fótboltaleikinn okkar og mér finnst við rúlla bolta ágætlega. Ég hefði viljað sjá meiri færslur á milli kanta og svona en svona í heildina mjög gott í fyrsta leik, að vinna útileik og gera það nokkuð sannfærandi."
„Það er rosa gott að vera kominn heim. Deildin, þetta er bara skemmtilegt, mér finnst ótrúlega gott að vera kominn heim í íslenskan fótbolta aftur. Þetta er búið að vera býsna löng útleið hjá okkur í Svíþjóð en deildin verður bara skemmtileg held ég. Ég held að það séu mörg lið sem eiga eftir að berjast um toppsætin og svo held ég bara að botnbaráttan eigi eftir að vera jafnari en fólk heldur sko. Þannig ég held að deildin verði bara býsna jöfn og skemmtileg."
Það verður Suðurlandsslagur á þriðjudaginn þegar Selfyssingar fara til Eyja og mæta ÍBV.
„Það er bara gaman. Ég á afmæli þennan dag þannig það verður bara gaman að fara og halda upp á afmælið í Vestmannaeyjum. Við spiluðum við ÍBV í vetur og þær litu býsna vel út. Þær eru sterkar og Glenn er líka búinn að setja handbragð þarna, búinn að stimpla inn útlendinga snemma og byrjaður að spila sinn bolta. Þetta var ekki drauma senaríó að fara í tvo útileiki á móti nýliðum og svo út í Eyjar. En við tökumst bara á við það head on og reynum að halda áfram að þróa okkar leik," sagði Bjössi að lokum.
Viðtalið má sjá í heild í spilaranum að ofan, þar talar Bjössi meðal annars um nýjar áherslur hjá þjálfarateyminu og fleira.




