Jackson, Conte, Robertson, Alisson, Simons, Bernardo Silva og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 27. apríl 2026 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Einn leikmaður fyrir hvert lið í Bestu fyrir gluggalok
Jason Daði með Gunna Birgis.
Jason Daði með Gunna Birgis.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísak Andri er frábær leikmaður.
Ísak Andri er frábær leikmaður.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hólmbert Aron Friðjónsson.
Hólmbert Aron Friðjónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarni Mark myndi styrkja KA mikið.
Bjarni Mark myndi styrkja KA mikið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hinrik Harðarson er leikmaður sem lyft FH upp.
Hinrik Harðarson er leikmaður sem lyft FH upp.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Félagaskiptaglugginn í Bestu deild karla og kvenna lokar á miðnætti á miðvikudag. Eflaust eru mörg félög enn að skoða í kringum sig áður en glugginn lokar og aldrei að vita nema eitthvað gerist.

Við á Fótbolta.net ætlum aðeins að skoða þetta til gaman og velja einn leikmann sem hvert félag í Bestu deildinni ætti að skoða fyrir gluggalok.

KR: Jason Daði Svanþórsson
KR situr á toppnum í Bestu deildinni og hefur farið ótrúlega vel af stað. Sóknarleikurinn hefur verið stórkostlegur í upphafi móts en hann gæti orðið enn betri ef Jason Daði mætir á svæðið. Virðist ekki vera mikið inn í myndinni hjá Grimsby og hefur spilað áður fyrir Óskar Hrafn, þjálfara KR.

Víkingur R.: Ísak Andri Sigurgeirsson
Það er alls ekki auðvelt að reyna að styrkja þennan magnaða leikmannahóp Víkinga, en það er heillandi fyrir íslenska leikmenn að spila í forkeppni Meistaradeildarinnar með Víkingum. Þeir eru líklega að fara í annað hvort Evrópudeildina eða Sambandsdeildina og það er stór stökkpallur. Ísak Andri er á láni hjá Viborg í Danmörku þessa stundina en hann gæti kryddað sóknarleik Víkinga allverulega. Frábær leikmaður sem getur leyst margar stöður framarlega á vellinum.

Valur: Hlynur Freyr Karlsson
Hlynur hefur lítið komið við sögu með Brommapojkarna nú í upphafi tímabils í Svíþjóð. Hlynur spilaði síðast á Íslandi árið 2023, þá með Val og var þá gjörsamlega stórkostlegur. Getur leyst fjölmargar stöður, spilað sem miðvörður, bakvörður og sem akkeri á miðjunni. Færi í algjört lykilhlutverk á Hlíðarenda og er karakter sem getur drifið þetta Valslið áfram.

Stjarnan: Ari Leifsson
Stjörnumenn eru frábærir fram á við með leikmenn eins og Birni og Emil Atla. Hinum megin á vellinum væri þó ekki heimskulegt að sækja styrkingu, sérstaklega í hjarta varnarinnar. Ari Leifsson hefur verið mikið orðaður við heimkomu og hann myndi styrkja varnarlínuna í Garðabænum til muna.

Þór: Jakob Franz Pálsson
Þórsarar hafa mikið verið í því að sækja uppalda Þórsara heim í vetur. Atli Sigurjónsson, Ágúst Hlynsson og Bjarni Guðjón Brynjólfsson hafa meðal annars allir samið við félagið. Vill Jakob Franz ekki bara bætast í þann hóp? Leikmaður sem getur spilað sem miðvörður, bakvörður og miðjumaður og væri góður í breiddina fyrir norðan.

Breiðablik: Hólmbert Aron Friðjónsson
Breiðablik þarf sóknarmann sem getur skorað mörk. Það hefur verið mikið bitleysi í Blikum í upphafi móts og þeir þurfa striker sem getur leitt línuna. Albert Brynjar Ingason talaði um það á dögunum að það væri bara metnaðarleysi hjá Breiðabliki ef þeir myndu ekki sækja sóknarmann og það er í raun alveg hægt að taka undir það. Hólmbert Aron, sem hefur verið lengi í atvinnumennsku, hefur verið orðaður við Blika og hér einnig hægt að nefna Árna Vilhjálmsson.

Fram: Aron Snær Ingason
Aron Snær hefur verið mikið orðaður við Val upp á síðkastið en af hverju ætti Fram ekki að reyna að fá hann. Það vantar kannski aðeins meiri breidd framarlega á vellinum og Aron Snær er uppalinn Framari sem gæti komið með mikið að borðinu í Úlfarsárdalnum. Hefur leikið vel með Þrótti upp á síðkastið og er Valur mikið að reyna að kaupa hann.

ÍA: Oliver Stefánsson
Skagamenn eru búnir að styrkja sig vel í vetur með frábærum leikmönnum. Oliver er leikmaður GKS Tychy í pólsku B-deildinni. Hann gekk til liðs við pólska félagið fyrir tæpu ári síðan frá Skagamönnum en er nú orðaður við heimkomu. Hann myndi bæta breiddina enn frekar og er jafnframt sterkur karakter.

KA: Bjarni Mark Antonsson
Það sást í gær, þegar KA tapaði gegn Keflavík, að Akureyringum vantar karakter. Miðjan hjá Keflavík var jafnframt sterkari en miðjan hjá KA og myndi Bjarni Mark bæði koma inn með gríðarlegan karakter og mikinn styrk. Miðað við leikinn í gær þá er hann akkúrat leikmaður sem KA vantar áður en glugginn lokar.

Keflavík: Dagur Örn Fjeldsted
Keflvíkingar hafa bara verið nokkuð skemmtilegir í upphafi tímabilsins. Þeir hefðu væntanlega ekkert á móti því samt að auka við breiddina framarlega á vellinum. Dagur hefur spilað í háskólaboltanum í Bandaríkjunum fyrri hluta árs en er nú mættur aftur heim. Hann er samningsbundinn Breiðabliki út þetta tímabil en spurning hversu stórt hlutverk hans verður þar, ef eitthvað.

FH: Hinrik Harðarson
FH vantar kraft, orku og karakter. Hinrik hefur lítið komið við sögu hjá Odd í norsku B-deildinni upp á síðkastið en þangað var hann sóttur fyrir um ári síðan. Hann skoraði sjö mörk og lagði upp fimm í 26 leikjum með ÍA í Bestu deildinni sumarið 2024. Fjölskylda hans er af FH ættum og hann myndi styrkja Fimleikafélagið gríðarlega innan sem utan vallar.

ÍBV: Þorsteinn Aron Antonsson
„Í dag voru of margir sem höfðu ekki áhuga á að verjast. Við erum eiginlega heppnir að vera bara 0-4 undir í hálfleik," sagði Sigurður Arnar Magnússon, varnarmaður ÍBV, eftir stórt tap gegn KR á dögunum. Bætum þá í vörnina. Þorsteinn Aron hefur klárlega burði til að spila í Bestu deildinni og það er í raun bara kominn tími á það. Væri mjög sterkt fyrir Eyjamenn að sækja þennan spennandi hafsent sem spilar í dag með HK í Lengjudeildinni.
Slapp
banner
banner
banner