Kári Kristjánsson leikmaður FH var á börunum í stórleik Lengjudeildar karla á laugardag þegar Þróttur fékk Njarðvík í heimsókn.
Kári sem er sonur Kristjáns Kristjánssonar, formanns knattspyrnudeildar Þróttar, er uppalinn hjá Þrótti þar sem hann lék þar til í vetur er hann gekk í raðir FH.
Kári sem er sonur Kristjáns Kristjánssonar, formanns knattspyrnudeildar Þróttar, er uppalinn hjá Þrótti þar sem hann lék þar til í vetur er hann gekk í raðir FH.
Þrátt fyrir að vera orðinn leikmaður FH er Kári enn mikill Þróttari eins og sást á laugardaginn.
Þrótturum er spáð góðu gengi í Lengjudeildinni í sumar en þeir byrjuðu mótið á 2-0 sigri á heimavelli. Kári sagði í viðtali við Fótbolta.net í vetur að það hefði verið erfitt að fara úr Laugardalnum.
„Það verður bara skemmtilegt að fylgjast með Þrótti, þetta er náttúrulega eitt skemmtilegasta lið landsins að horfa á og það verður bara gaman að fylgjast með þessari veislu úr stúkunni," segir Kári sem byrjaði þó tímabilið á börunum.



