27.05.05 - 23:05
Magnús Már Einarsson
Stefán Logi í KS (Staðfest)

Stefán Logi Magnússon.

Stefán Logi Magnússon.

Markvörðurinn Stefán Logi Magnússon hefur gengið til liðs við 1.deildarlið KS. Stefán Logi sem er fæddur árið 1980 kemur frá Þrótti R. en hann hefur reyndar ekkert verið með liðinu að undanförnu.
Stefán var á sínum tíma á mála hjá Bayern Munchen og einnig hjá Bradford í Englandi. Hann kom heim úr atvinnumennskunni árið 2003 og gekk þá til liðs við Víking R. áður en að hann fór í Þrótt.
Ástæða þess að KS er að fá Stefán Loga er sú að liðið er komið 4 leikmenn utan Evrópusambandsins en aðeins 3 leikmenn mega spila með liðinu í hverjum leik.
Stefán Logi verður því í marki KS gegn HK á morgun en Danilo Radoman verður að sætta sig við að vera ekki í leikmannahópi KS þar sem Sasa Vojnic Zelic og Branislav Zrnic verða í hópnum sem og Aleksandar Lazarevic sem kom til Siglfirðinga í vikunni.