Arsenal með augastað á Rogers - PSG veitir Liverpool samkeppni - Grealish fær annað tækifæri hjá City
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
Mattías Kjeld: Valur gat ekki lofað mér mínútum
Nenad: Búið að vera töfrasirkús
Jóhann Birnir: Eitthvað kæruleysi hjá öllum
„Þá er ég ekki það grænn og vitlaus að ég get alltaf hrósað okkur fyrir frábært spil og ægilega óheppnir"
Borja: Allt of dýrt að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum
Gunnar Heiðar: Þetta er erfiðasta fæðing sem ég hef séð
Davíð Smári: Miklar tilfinningar að keyra inn í bæinn
Birnir Snær: Reynir mest á hausinn
Arnór Ingvi: Allt á uppleið í KR og í Vesturbænum
Óskar Hrafn: Ber mikla virðingu fyrir körfu- og handboltaliðum
Hemmi: Ég er grautfúll
Gylfi: Mjög góðir þó að staðan hjá þeim er eins og hún er
Sölvi: Þarf að setja meiri pressu á Kára
Jökull: Stuðningsmennirnir eiga meira skilið
Telma Steindórs: Við höfum getað gert miklu betur
Ian Jeffs: Þetta var ekki alveg sanngjarnt
Óskar Smári: Við missum ekki svefn yfir því
Guðni: Það væri frábært ef þetta væri svona í öllum leikjum
   mið 27. maí 2026 22:10
Kristján Hrafn Kristjánsson
Davíð Smári: Miklar tilfinningar að keyra inn í bæinn
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Davíð Smári og leikmenn hans í Njarðvík gerðu góða ferð vestur á Ísafjörð í kvöld þar sem þeir unnu lið Vestra 0:3.

Fótbolti.net ræddi við Davíð Smára þjálfara Njarðvíkur og fyrrverandi þjálfara Vestra eftir leikinn.


Lestu um leikinn: Vestri 0 -  3 Njarðvík

Ég er ofboðslega ánægður með orkustigið og vinnusemina. Mér fannst við verjast vel þegar við þurftum að vera þéttir og við héldum vel í boltann þegar við þurftum að halda í boltann. Ég er heilt yfir gríðarlega ánægður með liðið."

Njarðvíkurliðið var rosalega orkumikið í kvöld, hvaðan kom orkan? 

„Við komum inn í þennan leik gegn gríðarlega sterkum andstæðingi og við ætluðum að vera duglegir, sýna sterka liðsheild og vera betra liðið og mér fannst við vera það í dag."

Davíð þjálfaði Vestra í þrjú tímabil og hann var að þjálfa í fyrsta sinn gegn gamla liðinu sínu. Hvernig var að þjálfa gegn gömlu félögunum?

Miklar tilfinningar að keyra inn í bæinn og sjá allt fólkið sem studdi mann. Mér þykir gríðarlega vænt um þá leikmenn sem spiluðu fyrir mig í Vestra og hef hef ekkert nema góðar tilfinningar til Vestra."



Slapp
banner
banner