Fotbolti.net
16.06.26 - 21:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Mbappe bætti met og færist nær öðru stóru meti

Kylian Mbappe.

Kylian Mbappe.

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Eftir að hafa skorað tvö mörk gegn Senegal í fyrsta leik Frakklands á HM í kvöld er Kylian Mbappe orðinn markahæsti landsliðsmaður í sögu Frakka.

Mbappe hefur núna skorað 58 landsliðsmörk og er búinn að taka fram úr Olivier Giroud.
Fjórtán af þessum mörkum hjá Mbappe hafa komið á heimsmeistaramóti.

Honum vantar núna bara tvö mörk til að jafna met Þjóðverjans Miroslav Klose yfir flest mörk á heimsmeistaramóti. Klose skoraði 16 mörk á fjórum mótum en Mbappe er núna á sínu þriðja móti.

Það verður að teljast ansi líklegt að Mbappe muni jafna og jafnvel bæta metið á þessu móti.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.