HM: Frakkar vöknuðu af værum blundi

Mbappe kom Frökkum á bragðið.

Mynd: EPA

Frakkar fagna marki.

Mynd: EPA

Úr leiknum í dag.

Mynd: EPA

Mbappe kom Frökkum á bragðið.

Mynd: EPA
Frakkland 3 - 1 Senegal
1-0 Kylian Mbappe ('66 )
2-0 Bradley Barcola ('82 )
2-1 Ibrahim Mbaye ('90 )
3-1 Kylian Mbappe ('90 )
1-0 Kylian Mbappe ('66 )
2-0 Bradley Barcola ('82 )
2-1 Ibrahim Mbaye ('90 )
3-1 Kylian Mbappe ('90 )
Frakkland náði í sigur á fyrsta leik sínum á HM í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó. Ekki var það auðvelt en það tókst þó.
Franska liðið var afskaplega slakt í fyrri hálfleiknum og voru bara heppnir að vera ekki 1-0 undir í hálfleik. Það var engin ákefð í Kylian Mbappe og félögum en það breyttist í seinni hálfleiknum.
Stóra breytingin hjá Frökkum í seinni hálfleik var líklega sú að Michael Olise fór meira miðsvæðis og komst meira í boltann. Hann átti stórkostlega sendingu inn á Mbappe á 66. mínútu og stórstjarnan kláraði vel. Mbappe færist nær markametinu á HM og alls ólíklegt að hann slái það á þessu móti. Honum vantar bara þrjú mörk núna til að jafna Miroslav Klose.
Stuttu áður en Mbappe skoraði hefði hann að öllum líkindum átt að fá vítaspyrnu en dómarinn sagði nei, meira að segja eftir að hafa farið í skjáinn.
Nicolas Jackson skoraði rangstöðumark fyrir Senegal eftir mark Mbappe en varamaðurinn Bradley Barcola, sem ógnar oft með hraða sínum og krafti, bætti við öðru marki og gerði stöðu Frakka þægilegri.
Ibrahim Mbaye, leikmaður Paris Saint-Germain, minnkaði muninn fyrir Senegal í uppbótartímanum og skapaði stress fyrir Frakka í nokkrar sekúndur því Mbappe var búinn að gera annað mark sitt og þriðja mark Frakka strax eftir miðjuna. Mbappe er því tveimur mörkum frá Klose og allt mótið nánast eftir.
Lokatölur 2-0 fyrir Frakka sem voru í 45 mínútur að koma sér í gang. Noregur og Írak mætast klukkan 22:00 í þessum riðli.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!