Besta deildin: Tíu í röð - Ótrúlegur karakter hjá Stjörnunni

Víkingar hafa unnið tíu leiki í röð í Bestu deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er hamingja í Víkinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Emil Atlason skoraði þrennu.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Viktor Jóns var hetja ÍA.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Jón Þór stýrði Stjörnunni í fyrsta sinn.

Víkingur Reykjavík og KR áttust við í stærsta leik tímabilsins til þessa í Bestu deildinni í kvöld. Víkingar fóru með sigur af hólmi og eru núna búnir að vinna tíu leiki í röð í deildinni eftir jafntefli gegn Breiðabliki í fyrstu umferð.
Það var uppselt í Víkinni og mikil stemning, en heimamenn brutu ísinn þegar fimm mínútur voru til hálfleiks. Þá skoraði vinstri bakvörðurinn Helgi Guðjónsson með góðu skoti eftir hornspyrnu.
Víkingar fóru með forystuna í hálfleikinn en í seinni hálfleiknum pressuðu gestirnir stíft og lengi vel var jöfnunarmark í loftinu. Víkingar eru hins vegar frábærir í að refsa og það gerðu þeir á 73. mínútu þegar Valdimar Þór Ingimundarson skoraði.
Þetta er í fyrsta sinn í sumar þar sem KR skorar ekki í leik í Bestu deildinni. Víkingar eru með sex stiga forystu á KR á toppi deildarinnar eftir þennan leik.
Rosalegur karakter hjá Stjörnunni í fyrsta leik Jóns Þórs
Í Garðabænum var samt sem áður mesta skemmtunin þar sem Stjarnan og Breiðablik mættust í nágrannaslag.
Það er óhætt að segja að Jón Þór Hauksson hafi fengið martraðarbyrjun sem þjálfari Stjörnunnar en hann var að stýra sínum fyrsta leik eftir að hafa tekið við af Jökli Elísabetarsyni um síðustu helgi.
Það voru ekki nema sex mínútur búnar af leiknum þegar staðan var orðin 0-2 fyrir gestunum úr Kópavogi. Breiðablik komst svo í 0-3 eftir tæplega hálftíma leik þegar Aron gerði sitt annað mark.
Útlitið var orðið hræðilegt fyrir Stjörnuna en þeir gáfust heldur betur ekki upp. Emil Atlason sýndi úr hverju hann er gerður með því að skora tvö góð mörk fyrir hlé og laga stöðuna, 2-3 þegar liðin gengu til búningsklefa.
En aftur fengu Stjörnumenn högg þegar Kristófer Ingi Kristinsson skoraði snemma í seinni hálfleik. Kristófer Ingi er uppalinn í Stjörnunni og fagnaði ekki.
Emil var ekki búinn að segja sitt síðasta því hann fullkomnaði þrennuna á 64. mínútu og á 80. mínútu jafnaði Birnir Snær Ingason metin. Birnir hefur ekki fundið sig á tímabilinu en þetta mark ætti að gera honum gott.
Bæði lið reyndu hvað þau gátu til að skora sigurmarkið en lokatölur 4-4. Stjarnan getur fagnað í ljósi þess hve illa liðið byrjaði í leiknum en Blikar eru væntanlega brjálaðir. Stjarnan er í sjöunda sæti með ellefu stig og Breiðablik er í fjórða sæti með 16 stig, sjö stigum á eftir Fram sem er í þriðja sæti. Deildin er að skiptast efst; Víkingar langefstir, KR og Fram koma svo, og þar eftir ertu með nokkuð þéttan pakka.
Sterkur sigur Skagamann
Á Akranesi vann ÍA svo sterkan sigur gegn Val þar sem Viktor Jónsson skoraði eina mark leiksins. Markið skoraði hann á 40. mínútu eftir að hafa unnið boltann í vítateig Vals.
ÍA hefur verið á góðu róli í Bestu deildinni að undanförnu og fer nú upp að hlið Vals með 15 stig. Liðin eru í fimmta og sjötta sæti deildarinnar.
Víkingur R. 2 - 0 KR
1-0 Helgi Guðjónsson ('40 )
2-0 Valdimar Þór Ingimundarson ('73 )
Lestu um leikinn
Stjarnan 4 - 4 Breiðablik
0-1 Viktor Karl Einarsson ('5 )
0-2 Aron Bjarnason ('6 )
0-3 Aron Bjarnason ('28 )
1-3 Emil Atlason ('30 )
2-3 Emil Atlason ('38 )
2-4 Kristófer Ingi Kristinsson ('54 )
3-4 Emil Atlason ('64 )
4-4 Birnir Snær Ingason ('80 )
Lestu um leikinn
ÍA 1 - 0 Valur
1-0 Viktor Jónsson ('40 )