Fotbolti.net
16.06.26 - 20:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Liverpool mun hafna fyrsta tilboðinu í Jones

Curtis Jones í símanum.

Curtis Jones í símanum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Liverpool mun hafna fyrsta tilboði Inter Milan í enska miðjumanninn Curtis Jones.

Samkvæmt ítalska miðlinum La Gazzetta dello Sport hefur Inter lagt fram tilboð upp á um 17,2 milljónir punda í hinn 25 ára gamla Jones, sem er með samning hjá Liverpool til júní 2027.
Jones er sagður áhugasamur um mögulegt skref til Ítalíu og hefur framtíð hans hjá Liverpool verið til umræðu innan félagsins síðustu vikur.

Liverpool er hins vegar ekki tilbúið að láta leikmanninn fara fyrir lægri upphæð en 26 milljónir punda og hafnar því tilboði Inter.

Inter Milan er sagt vilja reyna að landa leikmanninum á „hagstæðu verði“, en ljóst er að ítalska félagið þarf að bæta verulega við tilboð sitt ef af félagaskiptum á að verða.
Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.