Enrique Riquelme, forsetaframbjóðandi Real Madrid, hefur fullyrt að hann hafi þegar tryggt komu tveggja ónefndra „alþjóðlegra stjarna“ ef hann nær kjöri sem forseti félagsins.
Kosningar verða haldnar í fyrsta sinn í 20 ár hjá Real Madrid eftir að framboð Riquelme var samþykkt formlega þar sem hann mun keppa við núverandi forseta Florentino Pérez.
„Við erum með tvær alþjóðlegar stjörnur klárar,“ sagði Riquelme, en vildi ekki nefna leikmennina. Hann sagði þó að samningar væru í höfn og að tilkynning gæti komið í kosningabaráttunni.
Riquelme gagnrýndi einnig stöðuna innan félagsins og sagði að skortur á faglegri stjórnun hefði haft áhrif á frammistöðu liðsins. Hann gaf jafnframt í skyn að hann myndi meta framtíð þjálfarans José Mourinho, sem hefur verið orðaður við endurkomu til félagsins, en vildi ekki staðfesta hver tæki við liðinu.
„Real Madrid má ekki gera tilraunir með þjálfara,“ sagði hann jafnframt og bætti við að hann hefði áhuga á þjálfurum á borð við Jürgen Klopp, þó engin ákvörðun hafi verið tekin.
Kosningarnar gætu þannig markað upphaf nýs kafla hjá spænska risanum, sem hefur ekki unnið stóran titil tvö tímabil í röð.



