Arsenal með augastað á Rogers - PSG veitir Liverpool samkeppni - Grealish fær annað tækifæri hjá City
   mið 27. maí 2026 23:14
Brynjar Ingi Erluson
Glasner: Trúi ekki að þetta hafi verið síðasti leikurinn
Oliver Glasner
Oliver Glasner
Mynd: EPA
Oliver Glasner, stjóri Crystal Palace, á bágt með að trúa því að hann hafi verið að stýra liðinu í síðasta leik sínum, en hann endaði dvöl sína hjá félaginu með því að vinna Sambandsdeild Evrópu.

Jean-Philippe Mateta tryggði Palace Sambandsdeildartitilinn og kom liðinu í Evrópudeildina fyrir næstu leiktíð.

Þetta var þriðji titillinn undir stjórn Glasner, en hann vann enska bikarinn og samfélagsskjöldinn á síðustu leiktíð og vann síðan Sambandsdeildina í fyrstu tilraun.

„Ég verð að áframsenda hamingjuóskir á leikmennina og liðið því þetta er nákvæmlega leikurinn sem við bjuggumst við, en mér fannst við spila ótrúlega vel í fimmtán mínútur í síðari hálfleik, þar sem við skoruðum markið og gátum gert út um leikinn.“

„Við vörðumst líka vel í lokin þannig þetta var stórkostlegt kvöld og fannst mér þessi leikmannahópur, félagið og stuðningsmennirnir verðskulda að vinna Sambandsdeildina. Þess vegna er ég svo ótrúlega glaður,“
sagði Glasner.

Þetta var síðasti leikur hans, en samningur hans rennur út í næsta mánuði.

„Ég trúi því ekki að þetta hafi verið síðasti leikurinn, en já ég tók þessa ákvörðun. Þetta er kafli og mjög góður kafli til að lesa í Crystal Palace-bókinni, en það koma aðrir kaflar í kjölfarið.“

„Stundum þarftu að taka hringferð og núna erum við komnir. Crystal Palace er nákvæmlega á þeim stað sem það á að vera á,“
sagði Glasner.
Slapp
banner
banner
banner
banner