27.06.05 - 09:57
Hafliði Breiðfjörð
Magnús Már Lúðvíksson í Þrótt (Staðfest)


Mynd: Jón Óskar/ÍBV


Mynd: Jón Óskar/ÍBV
Magnús Már Lúðvíksson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Þróttara sem leika í Landsbankadeild karla. Magnús hefur verið hjá ÍBV frá því í febrúar í fyrra og leikið þar sem framherji og miðjumaður. Hann hafði leikið 6 leiki með liðinu á þessari leiktíð en í fyrra lék hann 13 leiki og skoraði í þeim fjögur mörk.
Magnús Már hætti skyndilega með ÍBV í síðustu viku vegna óánægju með það starf sem félagið útvegaði honum í Vestmannaeyjum. Hann er 24 ára gamall og hefur einnig verið hjá Drang, Val, KR og Fjölni.
Ljóst er að Magnús Már er mikill fengur fyrir Þróttara en þeim hefur ekki gengið vel á leiktíðinni og sitja í neðsta sæti Landsbankadeildarinnar með 5 stig.
Ljóst er að Magnús Már er mikill fengur fyrir Þróttara en þeim hefur ekki gengið vel á leiktíðinni og sitja í neðsta sæti Landsbankadeildarinnar með 5 stig.
