27.06.05 - 12:56
Hafliði Breiðfjörð
Stuart Taylor til Aston Villa (Staðfest)




Stuart Taylor markvörður Arsenal gekk í dag í raðir Aston Villa og gerði fjögurra ára samning við félagið. Taylor sem er 24 ára er fyrrum markvörður U-21 árs landsliðs Englands. Hann mun keppa um byrjunarliðssæti hjá Villa við Danann Thomas Sörensen.
Taylor lék 30 leiki fyrir Arsenal en mun nú semja við Aston Villa að því gefnu að hann komist í gegnum læknisskoðun. Taylor hefur einnig verið á láni hjá Bristol Rovers, Crystal Palace, Peterborough og Leicester.
