Fotbolti.net
27.06.05 - 16:16
Magnús Már Einarsson

Wise til Southampton (Staðfest)

Wise til Southampton (Staðfest)
Canon
Baráttujaxlin Dennis Wise hefur gert eins árs samning við 1.deildarlið Southampton. Wise sem er 38 ára gamall var spilandi þjálfari hjá Millwall en hann var látinn fara sem þjálfari og síðar sem leikmaður síðastliðið vor.
Wise sem er fyrrum leikmaður Chelsea byrjaði feril sinn hjá Southampton á sínum tíma en var látinn fara frá liðinu á unglingsárum.

Harry Redknapp stjóri Southampton sagði við heimasíðu liðsins: ,,Ég er glaður yfir því að við fengum hann, hann hefur reynslu og þú getur ekki haft of mikið af henni á þessu stigi Hann er baráttuhundur og sigurvegari og við þurftum þannig karakter í hópinn."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.