Fotbolti.net
27.06.05 - 18:20
Magnús Már Einarsson

Kroldrup til Everton (Staðfest)

Kroldrup til Everton (Staðfest)
Canon
Danski varnarmaðurinn Per Kroldrup hefur gert fjögurra ára samning við Everton en hann kemur á 5 milljónir punda frá Udinese.
Kroldrup sem er 25 ára var lykilmaður hjá Udinese en hann er annar leikmaðurinn sem kemur til Everton í sumar því Simon Davies hefur þegar gengið til liðs við það. Everton ákvað að kaupa Kroldrup eftir að Manchester City sagðist vilja fá 7 milljónir punda fyrir Sylvain Distin.

David Moyes stjóri Everton hefur hinsvegar sagt að liðið ætli ekki að kaupa nýjan markmann og virðist sem hann beri fullt traust til hins 38 ára gamla Nigel Martyn og Richard Wright en Everton hafði verið orðað við Robert Green markvörð Norwich.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.