Bjössi Hreiðars: Áttum að jafna í stöðunni 1-0
Auglýsing

Mynd: Ívar Atli Sigurjónsson

Mynd: Ívar Atli Sigurjónsson
Sigurbjörn Örn Hreiðarsson þjálfari Hauka var að vonum ekki ánægður eftir 3-0 tap sinna manna gegn KA á heimavelli í kvöld. Leikurinn var í jafnræðum lengi vel en KA-menn fengu þrjú færi í leiknum og nýttu þau öll.
,,Við náðum ekki að jafna því miður. Á mómenti þegar við áttum að jafna metin. Mér fannst við vera með tökin á þessu öllu saman. Þú verður samt að vera klár á öllum stöðum á vellinum en þeir refsa okkur með skyndisókn, 2-0 og mér sýndist þriðja markið var eitthvað svipað líka. Þeir gerðu mjög vel í því og voru nokkuð skipulagðir en við áttum auðvitað að jafna þennan leik í stöðunni 1-0,\" sagði Bjössi Hreiðars.
Honum fannst liðið byrja leikinn frekar rólega en vinna sem hægt og bítandi inn í leikinn. Það var því kjaftshögg fyrir liðið að fá annað marið á sig.
,,Við byrjuðum hægt og þeir komast yfir 1-0 en svo fannst mér við vera fínir restina af fyrri hálfleiknum og vorum komnir inn í leikinn og með tök á leiknum í upphafi seinni hálfleik. Við hefðum bara þurft að koma boltanum inn. En við gerum það ekki og þeir skora 2-0 og þá verður þetta erfitt,\" sagði Sigurbjörn.
Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.