Fotbolti.net
27.06.22 - 22:42
Brynjar Óli Ágústsson

Chris Brazell: Ég er vonsvikinn yfir þeim leikjum sem við höfum tapað

Auglýsing
Chirs Brazell, þjálfari Gróttu.

Chirs Brazell, þjálfari Gróttu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin

„Sáttur með úrslitina. Höldum hreinu, þrjú stig og flott frammistaða eftir síðasta leik,'' segir Chris Brazell, þjálfari Grótta, eftir 1-0 sigur heima gegn Þróttur V. í Lengjudeild karla.

„Huginn minn er meira á seinasta leik okkar. Í seinasta leik spiluðum við einum færri frá 55. mínútu og þrátt fyrir það fannst mér við aldrei gefast upp. Mér fannst það hjálpa mikið í þessum leik hvernig við brugðumst við tapið í seinasta leik,''

„Ég er mjög stoltur af strákunum sem komu nýjir inn í liðið. Ég þekki það vel sjálfur að þurfa vera mikið á bekknum, sem er ekki létt. Patrik, Sigurður og Ívan komu inn í byrjunarliðið. Ég er mjög ánægður með þeirra frammistöðu,''

Eftir sigurinn liggja Grótta í 2. sæti Lengjudeildarinnar. Chris var spurður um hvort hann væri ekki sáttur með sú stöðu.

Nei, ég stressi mig ekki mikið um hvar við erum í deildinni, það eru aðeins átta leikir búnir. Ég stressi mig meira á frammistöðuna hjá liðinu og úrslitina í leikjum. Ég er vonsvikinn yfir þeim leikjum sem við höfum tapað. Ef ég væri sáttur með hvar við erum staddir þá væri þá ætti ég bara að gefast upp á þessari vinnu,''  segir Chris Brazell

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.