Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
Kennie: Líður eins og ég sé 25 ára
Ólafur Ingi: Þurfum að vinna í andlega þættinum
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
Mattías Kjeld: Valur gat ekki lofað mér mínútum
Nenad: Búið að vera töfrasirkús
Jóhann Birnir: Eitthvað kæruleysi hjá öllum
„Þá er ég ekki það grænn og vitlaus að ég get alltaf hrósað okkur fyrir frábært spil og ægilega óheppnir"
Borja: Allt of dýrt að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum
Gunnar Heiðar: Þetta er erfiðasta fæðing sem ég hef séð
   fös 27. júní 2025 23:41
Anton Freyr Jónsson
Þrennuhetjan Kristófer: Okkar vantaði mörk og hann bað mig bara um að gera mitt
Kristófer var frábær í kvöld þegar hann kom inn á
Kristófer var frábær í kvöld þegar hann kom inn á
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristófer Ingi Kristinsson fór á kostum á Samsungvellinum Í Garðabæ í kvöld og skoraði þrennu. Kristófer byrjaði á bekknum en kom inn á þegar rúmar tuttugu mínútur voru eftir af leiknum. 

„Já ég skoraði mörk í kvöld svo sannarlega."


Lestu um leikinn: Stjarnan 1 -  4 Breiðablik

„Við vorum flottir í dag, það vantaði bara að klára færin eins og í síðasta leik, sérstaklega til að byrja með og það var bara frábært að klára leikinn og koma til baka."

„Við sýnum bara að við erum með ógeðslega sterkan hóp og menn geta komið inn af bekknum og breytt leikjum."

Kristófer Ingi Kristinsson kom inn á og breytti svo sannarlega leiknum og skoraði þrennu í kvöld. 

„Okkar vantar auðvitað mörk og bara biður mig um að gera mitt frammi og eiginlega ekkert sérstakt þannig"

„Við vissum bara að við þurfum að vinna leikinn, við þurftum að halda okkur í titilbaráttunni og fáranlega sterkt að klára þetta í dag."

Stuðningurinn sem Breiðablik fékk í kvöld var stórkostlegur. 

„Þetta er alveg geggjað, við finnum klárlega fyrir stuðningnum, eins og þú heyrir, geggjaðir í dag og eiga hrós skilið fyrir hjálpa okkur að klára þetta."


Slapp
banner