Fotbolti.net
27.06.26 - 14:00
Brynjar Ingi Erluson
Í samstarfi við styrktaraðila

PSG leiðir kapphlaupið um stjörnu Mónakó

PSG leiðir kapphlaupið um stjörnu Mónakó
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Evrópumeistarar Paris Saint-Germain leiða kapphlaupið um Maghnes Akliouche, leikmann Mónakó og franska landsliðsins.
Akliouche er einn eftirsóttasti leikmaður Frakklands en PSG hefur haft auga á honum í dágóðan tíma.

Þessi 24 ára gamli vængmaður er í landsliði Frakka sem spilar á heimsmeistaramótinu í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó og hefur þegar komið við sögu í einum leik.

PSG hefur verið í sambandi við Mónakó síðustu vikur og viðræðurnar eru sagðar komnar á næsta stig. Búist er við tilboði á næstu sólarhringum. Þetta segir Fabrizio Romano á X.

Tvö félög í ensku úrvalsdeildinni eru einnig sögð vera í baráttunni en PSG leiðir kapphlaupið. Liverpool er eitt þeirra félaga sem hafa sýnt Akliouche áhuga.

Akliouche kom að átján mörkum með Mónakó á síðustu leiktíð.
Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.