Fotbolti.net
27.07.05 - 10:25
Hafliði Breiðfjörð

Vassell til Manchester City (Staðfest)

Vassell til Manchester City (Staðfest)
Canon
Darius Vassell er genginn í raðir Manchester City frá Aston Villa en gengið var frá félagaskiptunum í morgun eftir að hann komst í gegnum læknisskoðun.
Kaupverðið er 2 milljónir punda og þar með er Stuart Pearce stjóri liðsins byrjaður að eyða hluta af þeim 21 milljónum punda sem hann fékk fyrir söluna á Shaun Wright- Phillips.

Vassell átti eitt ár eftir af samningi sínum við Villa. Hann skoraði aðeins þrjú mörk í 21 leik fyrir Villa á síðustu leiktíð. Villa mun líklega nota peningana upp í að kaupa Milan Baros frá Liverpool á 7 milljónir punda.

Vassell er fæddur í Birmingham. Hann hefur skorað sex mörk í 22 landsleikjum fyrir Englands hönd.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.