Fotbolti.net
27.07.05 - 13:43
Magnús Már Einarsson

ÍBV fær mann frá Bandaríkjunum (Staðfest)

Christopher Vorenkamp.

Christopher Vorenkamp.

Canon
ÍBV hefur fengið miðjumanninn Christopher Vorenkamp frá Bandaríkjunum. Vorenkamp sem er 24 ára hefur leikið með Minnesota Thunder að undanförnu en hann er kominn með leikheimild hjá Eyjamönnum.
Á heimasíðu Minnesota liðsins stendur að Edgar Davids sé uppáhaldsíþróttamaður Vorenkamp og þá finnst honum gaman að gera eitthvað úti til dæmis að ganga, hjóla, lesa eða kíkja á kayak eða á sjóskíði.

Eyjamenn hafa þegar nokkra erlenda leikmenn í sínum röðum og þeirra á meðal er Andrew Sam sem spilaði í Bandaríkjunum líkt og Vorenkamp. Eyjamenn fengu Danann, Rune Lind til liðs við sig fyrir skömmu og ætla greinilega að gera allt til að forðast fall en liðið er nú í 8.sæti í Landsbankadeildinni með 10 stig.

Eyjamenn eru nú staddir í Færeyjum þar sem þeir mæta B36 í Evrópukeppninni á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.