Fotbolti.net
27.07.05 - 14:07
Magnús Már Einarsson

KR fær Króata og Slóvena (Staðfest)

Dalibor Pauletic

Dalibor Pauletic

Canon
KR hefur fengið liðsstyrk fyrir lokasprettinn í Landsbankadeildinni því Króati og Slóveni munu koma til liðsins í kvöld. Króatinn sem heitir Dalibor Pauleticer er 26 ára og hefur hann leikið með NK Pula 1856 í heimalandinu að undanförnu. Hann er varnarmaður og er nokkuð stór eða 191 cm á hæð.
Slóveninn á einn landsleik að baki en hann hefur að undanförnu leikið í næstefstu deild í Grikklandi með liði Doxa Dramas. Hann er miðjumaður og er 186 cm á hæð.

KR er nú í 6.sæti í Landsbankadeildinni með 13 stig en eins og kunnugt er var Magnús Gylfason þjálfari liðsins rekinn fyrr í vikunni og Sigursteinn Gíslason ráðinn í hans stað.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.