Fotbolti.net
27.07.26 - 17:26
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Horfir á leikinn á hóteli í Árósum - „Fann bara strax að þetta fer 1-3"

Horfir á leikinn á hóteli í Árósum - „Fann bara strax að þetta fer 1-3"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér líst mjög vel á leikinn, held þetta verði svipað og í fyrri leiknum til að byrja með en svo förum við að taka stjórn á leiknum," segir Þórsarinn Ingimar Arnar Kristjánsson fyrir nágrannaslag KA og Þórs sem fram fer á Greifavellinum klukkan 19:15 í kvöld.

„Ég held að lykillinn að sigri fyrir okkur Þórsara sé að við spilum góða vörn og tökum færin okkar sem við munum gera í dag."

Ingimar mun ekki taka þátt í leiknum í dag en hann verður leikmaður danska félagsins Århus Fremad í vikunni ef allt gengur upp. Þór hefur samþykkt tilboð í framherjann sem fer í læknisskoðun á morgun.
Ingimar Arnar seldur til Danmerkur
TENGT EFNI

Ingimar Arnar seldur til Danmerkur

„Það er leiðinlegt að missa af þessum leik en ég hef fulla trú! Ég tek leikinn upp á hóteli í tölvunni, skil ekki að þessi leikur sé ekki sýndur hérna úti."

Hver eru þín skilaboð til leikmanna Þórs?

„Mín skilaboð til strákanna eru að njóta þess að spila og þá klára þeir þetta."

Hvernig spáiru leiknum?

„Ég heyrði í nokkrum úr liðinu áðan og fann bara strax að þessi leikur fer 1-3 fyrir okkur. Gyrðir skorar aftur eftir horn frá Einari, Fúsi setur síðan næsta en ég er ekki alveg kominn með hvernig mark það verður. KA minnkar svo muninn og þeir fara framar á völlinn, þá kemur AI (Aron Ingi) inn á, setur þriðja markið og klárar þetta og rífur sig úr að ofan. Það er svona nokkurn veginn svona sem ég sé þetta."
Horfir á leikinn á hóteli í Árósum - „Fann bara strax að þetta fer 1-3"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Horfir á leikinn á hóteli í Árósum - „Fann bara strax að þetta fer 1-3"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.