Selfoss er komið í ansi vonlausa stöðu í Bestu deildinni þegar silgt er inn í úrslitakeppnina eftir 3-0 tap gegn Stjörnunni í dag. Selfyssingar náðu að halda markinu sínu hreinu í fyrri hálfleiknum en eftir aðeins fimm mínútna leik í þeim seinni fengu þær á sig mark og áttu á brattann að sækja eftir það.
Lestu um leikinn: Stjarnan 3 - 0 Selfoss
„Náttúrulega pirraður yfir því að geta ekki fylgt þessum fyrri hálfleik eftir af því að hann var góður“ sagði Björn Sigurbjörnsson, þjálfari Selfoss, eftir leikinn.
„Mér fannst við verjast alveg sérstaklega vel og vinna vel sem lið í fyrri hálfleiknum og ætluðum bara að halda því áfram og halda okkur við okkar gameplan og svo gefum við frá okkur tvö klaufaleg mörk og eftir það þá er þetta eltingarleikur sem við réðum ekki við“ hélt hann svo áfram.
Selfyssingar eru komnir í mjög erfiða stöðu í neðsta sæti deildarinnar og þurfa liggur við kraftaverk til að halda sér í deildinni. Aðspurður hvernig hann sér fram á að halda sínum leikmönnum á tánum fyrir síðustu leikina segir hann:
„Við erum pínu að tala um og horfa í nýtt upphaf hjá félaginu. Þetta hefur gerst áður í félögum úti á landi að félög fara að veðja á ranga hesta í stað þess að einbeita sér að uppöldum leikmönnum og það eru bara mín mistök að hafa recruitað illa fyrir þetta tímabil og missa leikmenn strax fyrir tímabil.“
Viðtalið við Björn má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.





















