Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 27. september 2022 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Vestri auglýsir eftir þjálfara meistaraflokks kvenna
Mynd: Brynjar Óli Ágústsson

Knattspyrnudeild Vestra óskar eftir að ráða þjálfara meistaraflokks kvenna.


Starfshlutfallið er sveigjanlegt og eftir samkomulagi og getur þjálfun í yngri flokkum verið inni í starfinu.

Vestri er að endurreisa meistaraflokk kvenna fyrir keppnisárið 2023 og leitar félagið af drífandi þjálfara til að taka þátt í uppbyggingunni.

Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi með brennandi áhuga á knattspyrnuþjálfun. Reynsla og þjálfaramenntun er skilyrði fyrir ráðningu.

Aðrar hæfniskröfur:
 - Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði
 - Góð samskipti
 - Þjálfaramenntun
 - Hreint sakavottorð
 - Reynsla af sambærilegu starfi er kostur

Umsókn ásamt ferilskrá óskast sent á Kristján Þór Kristjánsson í netfang [email protected]. Nánari upplýsingar gefur Kristján í síma 861-4668.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner