Jón Þór Hauksson, landsliðsþjálfari Íslands, hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir stórleikinn gegn Svíum í Stokkhólmi klukkan 17:30.
Ísland og Svíþjóð gerðu jafntefli í síðasta mánuði og eru jöfn í efsta sæti riðilsins. Efsta liðið fer á EM en næstefsta liðið fer líklega í umspil.
Dagný Brynjarsdóttir er meidd og dettur úr byrjunarliðinu frá því í fyrri leiknum gegn Svíum. Hlín Eiríksdóttir kemur inn í liðið. Hlín byrjar á hægri kantinum en Karolína Lea Vilhjálmsdóttir fer af kantinum á miðjuna.
Hallbera Guðný Gísladóttir hefur verið að glíma við meiðsli en hún er klár í slaginn og byrjar í vinstri bakverði.
Sara BJörk Gunnarsdóttir, landsliðsfyrirliði, bætir leikjamet landsliðsins í dag en hún spilar sinn 134. landsleik. Katrín Jónsdóttir átti fyrra metið en hún spilaði 133 landsleiki á ferlinum.
Smelltu hér til að sjá beina textalýsingu
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir