27.10.26 - 14:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Davíð Smári hættur í Njarðvík (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Davíð Smári Lamude hefur sagt upp störfum sem þjálfari Njarðvíkur eftir eitt ár í starfi.
Davíð Smári staðfestir tíðindin í samtali við Fótbolta.net og segir að hann hafi tekið tíma í ákvörðunina og hún hafi verið erfið. Að lokum hafi hann komist að þeirri niðurstöðu að þetta væri besta niðurstaðan fyrir sig.
Hann þakkar Njarðvíkingum fyrir samstarfið en segir að það hafi ekki alveg verið samhljómur um hvernig framhaldið ætti að líta út.
„Ég er gríðarlega stoltur af þeim árangri sem við náðum með liðinu þrátt fyrir mikil áföll. Ég óska félaginu alls hins besta í framtíðinni," segir Davíð.

Davíð Smári tók við sem þjálfari Njarðvíkur eftir að hafa náð frábærum árangri með lið Vestra, gerði Vestra að bikarmeisturum og þar áður stýrði hann Kórdrengjum upp um þrjár deildir.'
Menn sem áttu að vera lykilmenn í liðinu voru ekkert með vegna meiðsla og aðrir lykilmenn misstu út á mikilvægum tímapunktum.
Njarðvík endaði í 5. sæti Lengjudeildarinnar í sumar og féll út í undanúrslitum umspilsins eftir spennandi einvígi gegn Þrótti sem fór í kjölfarið upp í Bestu deildina.
Uppfært: Njarðvík hefur staðfest tíðindin. Donni, aðstoðarmaður Davíðs, hefur einnig látið af störfum.