Allt bendir til þess að miðjumennirnir Scott McTominay og Paul Pogba verði ekki með Manchester United gegn Southampton í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag.
Báðir leikmennirnir hafa verið að glíma við meiðsli.
Báðir leikmennirnir hafa verið að glíma við meiðsli.
„Scott McTominay og Paul Pogba voru ekki úti á grasinu á æfingu svo þeir eru ólíklegir fyrir helgina," sagði Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United.
„Luke Shaw var að byrja í endurhæfingu, Jesse Lingard er byrjaður að æfa aftur eftir sóttkví og Phil Jones verður frá fram til jóla."
Athugasemdir