Fotbolti.net
27.11.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Ítalía um helgina - Þórir á heimavelli í kvöld

Ítalía um helgina - Þórir á heimavelli í kvöld
Canon

Mynd: Venezia FC

Þrettánda umferð ítalska deildartímabilsins fer fram um helgina og hefst veislan í Feneyjum í kvöld þegar Þórir Jóhann Helgason og félagar taka á móti Bologna.
Botnlið Venezia er aðeins búið að næla sér í 6 stig á tímabilinu og þarf því sigur í kvöld gegn Bologna sem er í efri hluta deildarinnar.

Albert Guðmundsson og félagar í toppliði Lazio heimsækja Torino á morgun áður en Ítalíumeistarar Inter taka á móti Mikael Agli Ellertssyni og félögum frá Genúa sem eru á góðu skriði og hafa unnið fjóra af síðustu fimm leikjum sínum í deildinni.

Það eru nokkrir spennandi slagir á sunnudag þar sem Napoli og Roma mæta til leiks áður en Como spilar við Juventus í stórleik helgarinnar.

Lærlingar Cesc Fábregas í liði Como eru fimm stigum fyrir ofan Juve í toppbaráttunni.

Nágrannaliðin Atalanta og Milan eiga að lokum útileiki seinni part mánudags.

Föstudagur
19:45 Venezia - Bologna

Laugardagur
14:00 Frosinone - Parma
17:00 Torino - Lazio
19:45 Inter - Genoa

Sunnudagur
11:30 Udinese - Fiorentina
14:00 Sassuolo - Napoli
17:00 Roma - Monza
19:45 Como - Juventus

Mánudagur
17:30 Lecce - Atalanta
19:45 Cagliari - Milan
Ítalía um helgina - Þórir á heimavelli í kvöld
Canon

Mynd: EPA

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio12+1932
2Roma12+2530
3Inter12+1529
4Milan12+1427
5Como12+1026
6Juventus12+721
7Frosinone12+520
8Napoli12+518
9Bologna12+218
10Genoa12-316
11Cagliari12-716
12Atalanta12-315
13Torino12-314
14Monza12-510
15Lecce12-1310
16Fiorentina12-119
17Parma12-128
18Sassuolo12-158
19Udinese12-136
20Venezia12-176
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.