Fotbolti.net
27.11.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

McNeil: Frank kemur með orku og sjálfstraust

McNeil: Frank kemur með orku og sjálfstraust
Canon

Mynd: Crystal Palace

Dwight McNeil svaraði spurningum eftir endurkomusigur Crystal Palace gegn tíu andstæðingum Real Sociedad í Evrópudeildinni í gær.
Evrópudeildin: Orri tapaði í London - Willum vann gegn Rennes
TENGT EFNI

Evrópudeildin: Orri tapaði í London - Willum vann gegn Rennes

Palace vann 2-1 á heimavelli eftir að hafa lent marki undir. Gestirnir frá Spáni misstu mann af velli með rautt spjald og því kláruðu heimamenn leikinn einum manni fleiri og var McNeil, sem skoraði sigurmarkið á 81. mínútu, mjög ánægður.

„Nýi þjálfarinn kemur inn með mikla orku og sjálfstraust. Hann er stöðugt að segja við okkur hvað við séum góðir í fótbolta og að við þurfum að sýna það á vellinum. Við erum mjög ánægðir að hafa tekist að gera það í kvöld," sagði McNeil eftir sjaldgæfan sigur á erfiðri byrjun á nýju tímabili.

„Við vissum að þetta yrði erfiður leikur og við gáfumst aldrei upp þó við höfum lent undir. Stóri maðurinn (Mateta) jafnaði svo fyrir okkur og við verðskulduðum að sigra.

„Síðustu fimm mínúturnar voru rosalega taugatrekkjandi, ég held að við höfum allir verið nálægt því að fá hjartaáfall þetta var svo mikið fram og til baka. Við verðum að bæta ýmislegt við okkar leik, til dæmis að stjórna betur síðustu mínútunum verandi manni fleiri, en það er hægara sagt en gert. Svona getur fótbolti verið erfiður og hlaðinn tilfinningum."


Þetta var aðeins annar sigur Palace í síðustu tíu leikjum í öllum keppnum og er liðið komið með 8 stig eftir 5 umferðir í Evrópudeildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.