Fotbolti.net
27.11.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Franska deildin

Sendu fimm stuðningsmenn Levski á spítala

Sendu fimm stuðningsmenn Levski á spítala
Canon

Mynd: EPA

Marseille tók á móti Levski Sofia í Evrópudeildinni í gær og enduðu fimm stuðningsmenn Levski á spítala eftir fólskulegar árásir stuðningsmanna Marseille.
Til að byrja með var stemningin mjög heit en stuðningsmannahópar liðanna voru aðskildir á áhorfendapöllunum, allt þar til tíu mínútum fyrir leik.

Hópur af vopnuðum stuðningsmönnum Marseille spretti þá af sínu svæði og tókst að ryðja sér leið inn á gestasvæðið. Þar réðust þeir á búlgarska stuðningsmenn Levski sem voru óvopnaðir og enduðu fimm þeirra á spítala.

Stuðningsmennirnir fimm voru með alvarlega áverka á augum og haus og fór einn úr axlarlið. Þá voru sex aðrir sem fengu aðhlynningu á vellinum en þurftu ekki að fara á spítala.

Þjálfarar beggja liða fordæmdu hegðun stuðningsmanna en lokatölurnar í Marseille urðu 1-0 fyrir heimamenn, eftir mark frá Amine Gouiri úr vítaspyrnu á 28. mínútu.

Forsætisráðherra Búlgaríu hefur einnig tjáð sig opinberlega um ofbeldið og fordæmt það með öllu.
Sendu fimm stuðningsmenn Levski á spítala
Canon

Mynd: EPA

Evrópudeildin

#LiðLmunStig
1Bournemouth5+1015
2Juventus5+1013
3Ferencvaros5+813
4Leverkusen5+912
5Benfica5+612
6St. Gilloise5+811
7Besiktas5+410
8NEC5+110
9Olympiakos5+110
10AZ5+59
11Anderlecht5+59
12Crystal Palace5+48
13Sunderland508
14Lyon5-18
15Hoffenheim5+27
16Levski507
17Dinamo Zagreb5-17
18Salzburg5-37
19Plzen506
20Milan5-16
21OFI5-16
22Rennes5-16
23Torreense5-36
24Marseille5-36
25Celtic5-46
26Omonia5-46
27Real Sociedad5+45
28Celje5-45
29Sparta Prag5-24
30Jagiellonia5-34
31Sturm5-54
32Celta5-33
33Lillestrom5-82
34Lech5-102
35Hapoel Beer Sheva5-81
36Ararat-Armenia5-120
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.