Fotbolti.net
27.11.26 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson

Fordæma ofbeldið sem stuðningsmenn urðu fyrir

Fordæma ofbeldið sem stuðningsmenn urðu fyrir
Canon

Mynd: EPA

Besiktas mætti ísraelska félaginu Hapoel Be'er Sheva, sem hefur sterk tengsl við Síonistahreyfinguna í Ísrael, í Evrópudeildinni í gær og urðu verulegar tafir á leiknum.
Leikurinn átti að fara fram í Istanbúl, á heimavelli Besiktas, en færa þurfti hann vegna mögulegra óeirðra í ljósi mikillar andstöðu Tyrkja við stríðinu sem ríkir í kringum Ísrael.

Reiði Tyrkja beinist að Ísraelum og því var ákveðið að færa leikinn til Georgíu.

Stuðningsmenn Besiktas flykktust því til Batumi í Georgíu og tóku ýmsa trefla og fána með sér til að sýna stuðning við Palestínu, eitthvað sem lögreglan í Batumi tók ekki vel í.

Georgíska lögreglan endaði á því að slást við tyrknesku stuðningsmenn Besiktas og gengu lögreglumenn svo langt að fara alla leið inn á áhorfendapallana, vopnaðir piparúða, til að beita stuðningsmenn Besiktas ofbeldi.

Tyrkneska fótboltasambandið er mjög ósátt með hvernig mál þróuðust og hefur Besiktas lagt fram opinbera kvörtun til UEFA.

Stöðva þurfti fyrri hálfleikinn í tæpan hálftíma vegna átaka stuðningsmanna og lögreglu.

„Við fordæmum sterklega ofbeldisfulla hegðun georgísku lögreglunnar sem beindist að stuðningsmönnum Besiktas bæði fyrir utan leikvanginn og inni á leikvanginum sjálfum," segir meðal annars í tilkynningu frá tyrkneska fótboltasambandinu.

Ástæðan fyrir ofbeldinu er sögð vera sú að tyrknesku stuðningsmennirnir sungu háværa söngva gegn Ísrael og voru mættir með ýmsa fána og risastóran borða til stuðnings Palestínu.

Besiktas stóð að lokum uppi sem sigurvegari í leiknum, lokatölur 2-1.
Fordæma ofbeldið sem stuðningsmenn urðu fyrir
Canon

Mynd: EPA

Evrópudeildin

#LiðLmunStig
1Bournemouth5+1015
2Juventus5+1013
3Ferencvaros5+813
4Leverkusen5+912
5Benfica5+612
6St. Gilloise5+811
7Besiktas5+410
8Olympiakos5+110
9NEC5+110
10AZ5+59
11Anderlecht5+59
12Crystal Palace5+48
13Sunderland508
14Lyon5-18
15Hoffenheim5+27
16Levski507
17Dinamo Zagreb5-17
18Salzburg5-37
19Plzen506
20OFI5-16
21Rennes5-16
22Milan5-16
23Torreense5-36
24Marseille5-36
25Omonia5-46
26Celtic5-46
27Real Sociedad5+45
28Celje5-45
29Sparta Prag5-24
30Jagiellonia5-34
31Sturm5-54
32Celta5-33
33Lillestrom5-82
34Lech5-102
35Hapoel Beer Sheva5-81
36Ararat-Armenia5-120
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.